“Fróðleiksþorstinn sem íslenskir krakkar búa yfir er óslökkvandi. Þaðað ekki sé nú þegar til margra ára gamalt íslenskt vísindasafn er í raun ótrúlegt og það er hagur allra landsmanna að stuðla að stofnun slíkrar stofnunar.”—Ævar vísindamaður
“Að kveikja neista í einu barni gæti leitt af sér eitthvað stórkostlegt fyrir íslenskt samfélag.“ —Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari og stjörnusérfræðingur
“Í hugum margra hljómar tilraunagarður í Toppstöðinni eins og skemmtigarður. Börn upplifa einmitt heimsókn í vísindasetur eins og skemmtiferð en í grunninn eru heimsóknirnar hvati til að læra vísinda- og tæknigreinar.“ —Katrín Lilja Sigurðardóttir, efnafræðingur
Ef þér líst vel á þessar hugmyndir og framtíðarsýn Toppstöðvarinnar þá máttu endilega skrá þig á lista stuðningsmanna hér. Því fleiri sem styðja verkefnið því meiri líkur er á að það geti orðið að veruleika. Það sem er ómögulegt í dag, gæti verið mögulegt á morgun.
* þarf að fylla út
Ef þig langar að heyra í okkur þá er best að senda okkur tölvupóst á netfangið: toppstodin2020@toppstodin2020.is