Photo by Dagný Land Design

Svæðið

Elliðaárdalurinn er miðsvæðis í borginni, dalurinn liggur að mörgum hverfum og leiðfólks liggur gjarnan í gegnum hann. Hann er mikilvæg samgönguæð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, en göngu- og hjólastígar hans tengjast við Fossvogsdal og Heiðmörk sem og nálæg íbúðahverfi. Miðlæg staðsetning Elliðaárdalsins gefur flestum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu tök á aðkomast þangað, hvort heldur fótgangandi eða með strætisvagni.

Með tilliti til samgangna þá eru all margar strætó stöðvar nálægt Elliðaárdalnum, en leið númer 19 stoppar á Rafstöðvarvegi, ekki langt frá Toppstöðinni. Einnig er gert ráð fyrir að Borgarlína muni stoppa í Ártúnsbrekku. Aðkoma bíla er greið án þess að þarna sé samgönguæð.

Náttúran

Elliðaárdalur er með stærri útivistarsvæðum í borginni. Það er mikilvægt útivistar- og náttúrusvæði með ríka sögu.

Gróðurfar í Elliðaárdal er mjög fjölbreytt. Helstu gróðurlendi í dalnum eru mýrar, mólendi, vallendi, blómlendi og skóglendi. Dýralíf í dalnum er umtalsvert en hefur mótast gegnum tíðina af þeim breytingum sem átt hafa sér stað í dalnum. Bæði árnar og skógurinn laða að sér fugla en fuglalíf er mikið í Elliðaárdalnum. Um 30 tegundir fugla eru reglulegir varpfuglar á svæðinu. Minkur finnst reglulega í dalnum og veldur fuglalífi skráveifu, einkum vatnafuglum. Þá er mikið um hálfvilltar kanínur í dalnum, sérstaklega á sumrin. Mikilvægasta vistkerfið í Elliðaárdalnum eru tvímælalaust Elliðaárnar en vatnasvið þeirra eru meðstærri og mikilvægari ferskvatnssvæðum á höfuðborgarsvæðinu og þar er auðugt lífríki. Í Elliðaánum sjálfum er lax ríkjandi meðal fiska og er gnógt af honum enda eru árnar framleiðsluríkar vegna reks lífrænna efna úr Elliðavatni.

Photo by Christopher Lund

Tenging við vísindasafnið TÚRBÍNUNA

Dalurinn hefur mikið fræðslu og vísindagildi, t.d. er snýr að sögu raforku, tækni og iðnaðar, jarðfræði og náttúrufræði. Jarðfræði Elliðaárdals er margbreytileg. Í dalnum og næsta nágrenni má finna jarðlög sem spanna seinni hluta ísaldar og hlýskeið nútíma.

Um tveggja milljón ára gamalt berg finnst í Ártúnshöfða en hið yngra Reykjavíkurgrágrýti er áberandi (eins og annars staðar í borgarlandinu) og má finna jökulrákaðar klappir. Vel hefur verið fylgst með fjölbreytni og tegundasamsetningu flórunnar í gróðurfari Elliðaárdals. Í flórulista frá 2004 fundust 320 plöntutegundir villtar í dalnum og var um helmingur þeirra slæðingar úr nálægum görðum eða gróðursettar plöntur.

Rafstöðin við Elliðaár var tekin í notkun sumarið 1921 og var raforkan flutt eftir háspennuraflínu að aðveitustöð á Skólavörðuholti. Raforkan var fyrst og fremst notuð fyrir lýsingu í Reykjavík. Toppstöðin var vara- og álagsstöð fyrir meginrafstöðina og tók til starfa 1948. Elliðaárdalur var í lykilhlutverki í ullarvefnaðariðnaði í Reykjavík á 18. öld sem var hluti af starfsemi Innréttinga Skúla Magnússonar landfógeta.
Í árhólmanum má sjá ummerki um mannvirkin er þessu tengdust en þar stóðuþófaramylla, litunarhús og sútunarverkstæði. Var vatnskraftur Elliðaánna nýttur við að þæfa og lita ullina.

Saga Toppstöðvarinnar

Toppstöðin var olíu- og kolakynnt varaaflstöðreist með Marshall-aðstoðinni sökum bráðrar þarfar fyrir raforku á árunum eftir seinni heimstyrjöldina og tekin í notkun árið1948. Hún gegndi mikilvægu hlutverki fram á 8.áratuginn, aðallega sem raforkustöð þegar mest álag var á kerfinu yfir vetrarmánuðina, en einnig til að skerpa á heita vatninu á mestu kuldatímum. Notkun stöðvarinnar lagðist að mestu leyti af eftir 1980.

Húsið er stálgrindahús hnoðað saman á sama hátt og Effelturninn í París og sennilega eitt fárra stálgrindahúsa af
þeirri gerð á landinu. Innviðir hússins eru nokkurn veginn óbreyttir frá því það var reist og vélakosturinn sem er frá því fyrir stríðteljast sem einstakar minjar. Stöðin er elsta gufuaflstöð á landinu.

Rafstöðvarsvæðið í heild sinni er mjög merkilegt í sögulegu samhengi og tengist tækni, hugviti og rafvæðingu frá upphafi byggðar í Reykjavík.

Frá 2008 hefur verið rekið frumkvöðlasetur í Toppstöðinni, þar sem einkum listamenn og hönnuðir hafa nýtt sér aðstöðuna.