Hugmyndin byggir á því að ólík starfsemi undir sama þaki vinni vel saman og styðji hver við aðra. Sterk heildarsýn styrkir virkni hússins og hefur bein áhrif á að reksturinn í heildina gangi vel. Hér að neðan er starfseminni skipt upp í fimm einingar sem saman mynda sterka heild.

  • TÚRBÍNAN – Vísindasafn sem er byggt á leik- og sköpunargleði og virkri þátttöku gesta.
  • Kaffihús – Mögulega sambland af kaffihúsi, bakaríi, ísbúð sem þjónustar gesti og gangandi.
  • Skapandi vinnurými – Leigurými í boði fyrir aðila sem vilja starfa í dýnamísku umhverfi.
  • Leikskóli – Dásamlegt umhverfi fyrir leikskóla sem þjónar nýjum og gömlum hverfum í nágrenni dalsins.
  • Almenningsrými – Lifandi umhverfi bæði innanhúss og utanhúss opið öllum.

Með því að gefa þessum einingum tækifæri til þess að vera í sama húsnæði en jafnframt með afmörkuð starfssvæði gefst vettvangur fyrir dýnamískri tengslamyndum á milli greina og verkefna ásamt því að vera líflegur staður fyrir fólk að heimsækja.

Það er því mikilvægt að fyrir hendi sé húsnæði eins og Toppstöðin sem býður upp á þessa eiginleika – þar sem eina raunverulega takmörkunin er ímyndunarafið sjálft. Listamenn og vísindamenn deila forvitni fyrir hinu óþekkta og áhuga á að búa til eitthvað nýtt. Það er algengur misskilningur að list og vísindi séu andstæður; þvert á móti. Listamenn og vísindamenn deila forvitni fyrir hinu óþekkta og áhuga á að búa til eitthvað nýtt. Tíðarandinn á sviði fræðigreina er sífellt að færast í átt að þverfaglegri rannsóknarvinnu og skilningi á tilverunni. Nábýli ólíkra greina getur ýtt undir nýsköpun og nýja sýn. Nálægð fólks, og þá sérstaklega barna, við skapandi umhverfi sem þetta opnar huga þeirra og ímyndunarafl um möguleika framtíðarinnar en það er virkilega mikilvægt nú í 4 iðnbyltingunni.

Photo by ArchDaily

Toppstöðin á að vera lifandi hús frá morgni til kvölds, allan ársins hring. Samsetning starfseminnar er gerð með það í huga. Ef stór hluti hússins er ónýttur yfr daginn hefur það neikvæð áhrif á aðdráttaraf hússins og á í hættu að verða einskonar „draugahús” í dalnum sem lítil ánægja er að heimsækja. Hér að neðan má sjá að starfsemin skarast vel yfr daginn og allan ársins hring.

Gestir og íbúar hússins eru fjölbreyttur hópur, t.a.m.;

  • Íbúar hússins eru þeir sem starfa í húsinu í mismunandi rekstrareiningum
  • Gestir dalsins
  • Kaffhúsagestir
  • Sýningagestir Túrbínunar
  • Foreldrar og börn sem sækja leikskóla
  • Fundahald fyrirtækja í grenndinni
  • Gestir sem sækja viðburði og uppákomur

Starfsemi Toppstöðvarinnar dreifist vel yfir daginn.