
Swings in Tate Modern Turbine Hall – Photo by SUPERFLEX on Flickr
Almenningsrými bæði innanhúss og utanhúss opið gestum og gangandi.
Elliðaárdalurinn er borgargarður og eitt stærsta græna svæðið innan þéttbýliskjarna Reykjavíkur. Hann er jafnframt eitt vinsælasta svæðið til útivistar, leikja og íþróttaiðkunar af ýmsu tagi allt árið um kring. Í neðri hluta dalsins, þar sem Toppstöðin er staðsett, er engin þjónusta í boði fyrir þá sem nýta dalinn. Til að mynda er hvorki veitingasala né salernisaðstaða. Það setur tvímælalaust strik í reikninginn hjá þeim sem vilja njóta dalsins í nokkra klukkutíma í senn, svo sem í lautarferð með fjölskyldunni eða á skíðum í Ártúnsbrekkunni.
Tryggja þarf leikaðstöðu fyrir börn á öllum árstímum. Hægt að nýta almenningsrými sér til afþreyingar og í ýmis konar viðburði. Sem dæmi getur fólk leitað skjóls frá veðri, tyllt sér niður í sófa, tekið skák, og nýtt snyrtiaðstöðu. Einnig verður hægt að nýta svæði undir lestrarhorn fyrir krakka, viðburði, listauppákomur og jólaþorp.

Photo by A3 Traveller on Flickr