
Photo by Ada Teicu
Mögulega sambland af kaffihúsi, veitingahúsi, bakaríi og ísbúð þar sem hægt að setjast niður með veitingar eða taka með sér í dalinn. Tilvalið fyrir ísbíltúra enda setur fólk ekki fyrir sig hér á landi að keyra þó nokkra vegalengd fyrir uppáhalds ísinn sinn.
Kaffihúsið mun bjóða upp á notalegt umhverfi til að spjalla, vinna, eða funda. En það mun einnig vera barnvænt enda er vöntun á kaffihúsi með leiksvæði fyrir krakka. Það væri sérstaklega vinsælt eftir vinnu, um helgar og yfir sumartímann. Staðsett í suðurhluta hússins með palli umhverfis kaffihúsið sem vísar í suður. Skjólsælt að sitja úti í gróðursælu umhverfi. Leiksvæði úti fyrir krakka þar sem auðvelt er að fylgjast með.

Photo by David Barbour, Design of Studio Weave UK