Vísindasafn Reykjavíkur / Reykjavík Science Center

Photo by Science Museum London

Vísindasafnið TÚRBÍNAN mun gegna lykilhlutverki í Toppstöðinni og vera nýr segull í borginni fyrir bæði borgarbúa og ferðamenn. Þangað koma ungir sem aldnir til að læra og leika sér, fá innblástur, víkka sjóndeildarhringinn og öðlast innsýn í fegurð vísindanna.

Við sjáum fyrir okkur vísindasýningu á heimsmælikvarða þar sem gestir verða þátttakendur í víðtækum skilningi og nýjasta tækni er notuð til að miðla fræðslu og þekkingu. Lögð verður áhersla á skapandi þekkingarleit, þverfaglega nálgun og vísindamiðlun með listrænu ívafi.

Vísindasafnið mun byggja á reynslu og starfi Vísindasmiðju Háskóla Íslands sem starfað hefur í Háskólabíói síðan 2012. Markmið Vísindasmiðjunnar er efla áhuga ungmenna á vísindum og fræðum með gagnvirkum og lifandi hætti. Smiðjan er löngu orðin mikilvægur þáttur í kennslu náttúru- og raunvísinda á Íslandi og hefur verið nánast fullbókað frá fyrsta degi.

Túrbínan mun gefa Vísindasmiðjunni nýja, glæsilega og vandaða umgjörð og útvíkka hlutverk hennar þannig að hún verður enn betur í stakk búin til að styðja við kennslu í náttúru- og raunvísindum en verður ekki síður aðdráttarafl fyrir ferðafólk og fjölskyldur í leit að skemmtun og afþreyingu.

Markmið TÚRBÍNUNNAR er;

  • Að efla skapandi, gagnrýna og lausnamiðaða hugsun í gegnum skilning og innsýn í vísindi og listir.
  • Að vera vettvangur fyrir fjölskyldur, skólahópa, kennara, vinnustaðahópa, ferðamenn og aðra áhugasama gesti á öllum aldri til að sjá, skoða, skapa og skilja.
  • Að styðja við formlega menntun á öllum skólastigum með óformlegri, gagnvirkri og nýstárlegri miðlun.

Nýsköpun í formi óhefðbundinna kennsluaðferða í vísindamenntun er mikilvægur þáttur í vitundarvakningu ungs fólks um áskoranir samtímans. Sömuleiðisþarf að efla vísindalæsi á öllum skólastigum og meðal almennings. Þarna getur vísindasafnið í Elliðaárdal átt ríkan þátt að máli.

Í Túrbínunni verða gagnvirk tæki og tól, námskeið, vinnusmiðjur, tilraunastofur, þrautir, námsleikir og margt fleira. Rík tenging verður við náttúruna og umhverfið í Elliðaárdal og verður dalurinn í raun ein allsherjar lifandi tilraunastofa og náttúruskóli fyrir gesti vísindasafnsins og þá sem þar starfa.

Photo by Electronica Center on Flickr

Vísindasafnið TÚRBÍNAN verður

  • Fjölskylduvænn staður fyrir börn á öllum aldri.
  • Hvetjandi vísindafræðsla byggð á leik og sköpunargleði.
  • Tilvalinn í vísindakennslu í leik- og grunnskólum.

Staðsetningin er mikilvæg þar sem dalurinn er mjög miðsvæðis á stórhöfuðborgarsvæðinu og mikilvægt útivistarsvæði borgarbúa. Þar er frjósamt lífríki gróðurs og mikið fuglalíf, ásamt villta laxinum í ánni. Því er tilvalið að tvinna lífríki dalsins inn í náttúruvísindin í Túrbínunni.

Öll tæki og tól, svo sem túrbínur og tölvur er þekja heilu veggina, eru enn til staðar – áþreifanlegir hlutir sem eru hluti af sögu iðnaðar og tækni, en gefa einnig byggingunni ákveðna sál og stemmingu. Þessa gripi ætti að virða og er eftirsóknanvert að nýta þá og aðlaga að vísindamiðlun til barna og unglinga.

Vísindasöfn leggja sinn skerf til menntunar samfélagsins, uppbyggingar og þróunar.

Framundan eru hraðar breytingar í samfélaginu og stórfelldar áskoranir. Vísindasöfn gegna þar mikilvægu hlutverki í að búa samfélagið undir nýja tíma því þau eru talin;

  • Auka vísinda- og tæknilæsi.
  • Örva gagnrýna, lausnamiðaða og skapandi hugsun.
  • Þroska félagsfærni, ýta undir félagsleg samskipti og samstarf.
  • Auka vitund fyrir umhverfinu og örva athyglisgáfuna.
  • Jákvæður fræðsluvettvangur fyrir fjölskyldur, þar sem kynslóðirnar uppgötva og skapa saman.
  • Efla sjálfstraust og örva forvitni.

Photo by Montreal Science Center

Vísindasöfn í nútíma samfélagi

Síðastliðna áratugi hafa lönd um allan heim leitað nýrra leiða til þess að efla vísinda-, og tæknimenntun þjóða sinna og þar hefur óformleg þekkingaröflun, utan hefðbundins skólanáms, gegnt sífellt stærra hlutverki. Má þar helst nefna gagnvirk vísindasöfn, vísindahátíðir og aukið samstarf vísinda- og listamanna.

Rík áhersla hefur verið lögð á að brúa bilið á milli vísinda og samfélagsins, opna samtal þar á milli og finna nýjar leiðir til þess að miðla og upplýsa. Þetta er ekki síst mikilvægt á okkar tímum þegar mikil þörf er á að finna skapandi lausnir á brýnum hnattrænum áskorunum, svo sem loftslagsbreytingum, nýtingu auðlinda, gróður- og jarðvegseyðingu og hvers konar lýðheilsumálum. Þessi umfangsmiklu og flóknu vandamál krefjast þess að ólíkar greinar þjóðlífsins taki höndum saman við vísinda- og tæknigeirann við leit á lausnum.

Vísindasöfn

  • Eru hvati fyrir börn og unglinga að velja nám og starfsframa á vettvangi vísinda.
  • Bjóða gestum uppá jákvæða, hvetjandi og skapandi upplifun.
  • Eru sá vettvangur óformlegrar fræðslu sem talinn er líklegastur til að auka áhuga barna á vísindum og þekkingarleit.
    • Auka þekkingu og skilning í námi og daglegu lífi.
    • Ýta undir forvitni, áhuga og löngun til að læra meira.
  • Geta aukið skilning á vísindalegum málefnum.
  • Geta haft aukið traust til vísinda og eflt tengsl vísinda og samfélags.

Photo by Ars Electronica Center on Flickr

Framlag vísindasafna til samfélagsins

  • Vísindasöfn eru mikilvægur hluti menningartengdrar ferðaþjónustu og því mikilvægt framlag til ferðamálagreinarinnar.
  • Vísindasöfn eru hluti af menntaframboði samfélagsins.
  • Vísindasöfn gegna oft mikilvægu hlutverki í uppbyggingu nýrra hverfa og laða til sín aðra menningar- og ferðatengda starfsemi (sbr. Techniquest í Cardiff, Wales).
  • Vísindasöfn gegna oft lykilhlutverki í endurvakningu gamalla eða fáfarinna borgarhluta og algengt er að þau hefji starfsemi í tómu iðnaðarhúsnæði eða öðru húsnæði þar sem starfsemin hefur flust í nýrri borgarhverfi. Sem dæmi um slíkt má nefna Experimentarium sem starfaði um árabil í gömlum Tuborg brugghúsum í Kaupmannahöfn, Sitta de la Sienza í Napolí sem opnaði í yfirgefnu verksmiðjuhverfi sem nú iðar af lífi og sömu sögu má segja um Heureka safnið í Finnlandi.

Sýningin

Á gagnvirkum vísindasöfnum er gengið út frá því að einstaklingar læri á mismunandi vegu, meðal annars gegnum skynfæri, tilfinningar, upplifun og sköpun. Með leikjum, áskorunum, óvæntum uppgötvunum og skapandi lausnum verður til ný þekking, oft ómeðvitað en engu að síður minnisstæð.

Óformleg fræðsla safnsins er hugsuð sem viðbót og dýpkun á þeirri þekkingu og reynslu sem gestir búa þegar að, eða eiga eftir að öðlast, til dæmis í formlegu námi. Vísindasöfn styðja því við nám á öllum skólastigum og geta aukið við þekkingu allra aldurshópa sem þangað sækja.

Photo by Mike Liu on Flickr

Tilraunir, uppákomur og vinnustofur

Starfsemi Túrbínunnar mun einkennast af lifandi vinnustofum, tilraunum og uppákomum sem gestir geta tekið virkanþátt í.

Sjá, skoða, skilja, skapa

Markmiðið er að setja upp sýningu sem aukþess að miðla vísindum á skýran hátt, kallar einnig fram viðbrögð hjá gestum, fær þá til aðspyrja sig spurninga og veitir þeim innblástur – heimsókn á sýninguna verður uppspretta nýrra verkefna, tilrauna og viðfangsefna.

Leiðarljós Túrbínunnar er að heillandi heimurinn allt í kringum okkur öðlast enn meira gildi, víðáttu og fegurð þegar við fáum færni og hæfni til þess að lesa úr því sem býr að baki. Læsi á umhverfið eflir gagnrýna, skapandi og lausnamiðaða hugsun, nokkuð það mikilvægasta sem við getum gefiðkynslóðum framtíðarinnar.

 

Photo by James Carnes on Flickr

Gestirnir

Vísindagarðurinn er hugsaður fyrir skólahópa, fjölskyldufólk og fróðleiksfúsa ferðamenn af öllum toga, óháð aldri, kyni ogþjóðerni.

Við sjáum fyrir okkur að Vísindagarðurinn verði einnig viðkomustaður listamanna, vísindafólks, frumkvöðla og framtíðarspekúlanta þar sem uppákomur og viðburðir munu gera staðinn að suðupotti hugmyndaauðgis og gagnrýninnar hugsunar. Vísindagarðurinn mun leggja áherslu á virkt samstarf við öll skólastig og menntayfirvöld í uppbyggingu starfseminnar, þróun dagskrár og gerð sýningarverkefna. Einnig verður leitað til starfandi vísinda- og fræðimanna, menningarstofnana, listamanna og atvinnulífs.

Photo by Ars Electronica Center on Flickr

 

Fimm helstu markhópar Túrbínunnar

1. Fjölskyldur

Túrbínan verður vinsæll áfangastaður fjölskyldna í leit aðskemmtilegri og uppbyggilegri afþreyingu um helgar. Sýningin mun höfða til allra í fjölskyldunni.

2. Skólahópar

Túrbínan verður hluti af innviðum íslenska menntakerfisins, viðkomustaður barna og ungmenna af öllum skólastigum. Vísindagarðurinn verður einnig viðkomustaður þeirra ungmenna sem koma árlega til Íslands í skólaheimsóknir ásamt íslenskra ungmenna.

3. Ferðamenn

Gera má ráð fyrir að erlendir ferðamenn, á eigin vegum eða í hóp, verði tíðir gestir í Túrbínunni. Það er vöntun á vönduðum áfangastöðum fyrir ferðamenn í borginni en það mætti gera ráð fyrir að 2,5% ferðamanna heimsæki sýninguna, um 32-45 þúsund manns á ári.

4. Fólk í endurmenntunar og þekkingarleit

Kennarar geta sótt þar endurmenntun, vinnustaðir og vinahópar fræðandi skemmtikvöld, fjölskyldur og ferðamenn geta sótt afþreyingu og fróðleik, skólahópar geta séð námsefni sitt í nýju ljósi og svona mætti lengi telja. Jafnframt verður Vísindagarðurinn miðstöð lifandi félags- og menningarlífs borgarbúa. Þar getur veriðvettvangur vísindaskóla á sumrin, halda má þar afmælisveislur með vísindabrag, skemmtileg kvöld fyrir fullorðna með lifandi vísindagleði, umræður og fræðsla um vísindaleg málefni líðandi stundar og margt fleira.

5. Starfsmenn Toppstöðvarinnar

Aðrir starfsmenn Toppstöðvarinnar munu einnig njóta góðs af sýningunni og tíðir gestir, en ólíkar rekstrareiningar eru ekki hugsaðar sem eyjur undir sama þaki, heldur flæðir á milli og starfsfólk annarra rekstrareininga mun eiga í margvíslegu samstarfi við Vísindagarðinn.